fimmtudagur, mars 30, 2006

My Faerieland Forgotten....

Fyrir nokkrum árum hafði ég mjög gaman af stjörnuspeki og draumaráðningum.
Var þetta aldrei meira en skemmtun, aldrei tók ég þetta alvarlega :)
Öll dreymum við, þótt yfirleitt munum við ekki eftir því daginn eftir.
Þannig hefur það verið hjá mér seinustu mánuði..þangað til á aðfaranótt mánudags.

Ég vaknaði einhvern tímann um nóttina útaf því að Gandalfur(kötturinn hennar Elísu)
var eitthvað að troða sér undir rúmteppið.
Eftir að hafa hent honum útúr herberginu fór ég aftur að sofa
og þá dreymdi mig draum sem er ennþá jafn lifandi núna, nokkrum dögum seinna,
þegar ég vaknaði um morguninn. Þetta hefur nú komið fyrir áður en þau skipti eru ansi fá.
En þessi var óvenju sterkur.

Við að loka augunum get ég séð staðinn fyrir mér, fólkið sem var í kringum mig,
öll hljóðin og lyktina.

Hvað er málið? af hverju man ég svona rosalega vel eftir þessum draumi?
og öll þessi smáatriði sem ég man venjulega ekki eftir þegar ég er vakandi :)

Það hafa komið fram alveg óteljandi kenningar um hvað draumarnir tákna,
en enginn hefur endanlegt svar.

Er þetta tæki heilans til að vinna úr tilfinningum? eða er undirmeðvitundin
að upplifa annann veruleika sem við tengjumst bara þegar við erum sofandi?

Draumar eru endalaus uppspretta umhugsunarefnis.

Það hefur komið fyrir að hlutir sem mig hefur dreymt hafa gerst síðar,
yfirleitt ekkert merkilegir hlutir,
nema þegar mig dreymdi að ég væri að fara að eignast stelpu fyrir 11 árum síðan.
Ég man vel eftir þeim draum enn í dag. Sit á baunapoka inná fæðingarherbergi með litla
stúlku í fanginum. Að vísu reyndist Elísa vera öðruvísi á litinn þegar hún kom loksins í heiminn(eiginlega grænleit) :) en að öðru leyti var þetta mjög svipað.

Mánudagsdraumurinn mun ekki gerast í þessum veruleika,
þar eru of mörg atriði sem geta ekki gerst.
Kannski voru þetta bara skilaboð frá Cthulhu? :p hehe

Engu að síður ljúfur draumur.

sunnudagur, mars 26, 2006

A Bolt of Blazing Gold

Jæja, Íslandsmeistaramótið í Taekwondo er lokið og mér tókst að fá 2 bronz.
Hefði samt viljað að ganga betur....en það er ekkert annað hægt en að vera sáttur við
fenginn hlut.

Pabbi er loksins vaknaður eftir að hafa verið sofandi í rúmann mánuð uppá gjörgæslu.
nánari upplýsingar er fá á Sivars bloggi.....

jamm...bjartari tímar framundan :)

mánudagur, mars 06, 2006

Cathode Ray Sunshine

Þetta var ekki róleg helgi.

Afmæli hjá henni Elísu á laugardag(ég var fastur inní eldhúsi að elda ofan í gestina)
og svo tók ég þátt í taekwondo styrktarmóti á sunnudag.
Náði öðru sæti í mínum flokki, sem ég tel að hafi verið heppni því að það var svo helvíti kalt inní salnum. Ég tók Elísu og Guðrúnu Lilju á skautasvellið í Egilshöll eftir mótið og það var eiginlega heitara þar inni :) Kvefið versnaði til muna eftir keppnina.

Afmælið tókst vel til, allur matur kláraðist(engir afgangar til að narta í daginn eftir).
Saknaði þó að hafa ekki pabba þarna. en hann var með í huga okkar allra.
Enn liggur hann sofandi uppá spítala og mun batinn taka langann tíma....

sunnudagur, mars 05, 2006

Mass Hypnosis

Trúarbrögð.....bölvun mannkynsins.

Allir þessir guðir, öll þessi trúarbrögð eru ekkert annað en uppfinning
fólks sem á sínum tíma hafði þörf fyrir að trúa á eitthvað en sjálfan sig
eða bjó til að svala þeirri þörf að drottna yfir öðru fólki.

Þegar við lítum yfir mannkynsöguna sjáum við ekkert annað enn hörmungar
sem þessi trúarbrögð hafa komið með.
Fjöldamorð, útrýmingar og annar hryllingur.
Heilaþvottur af verstu sort.

Öll trúarbrögð hafa gerst sek um slíkt einhvern tímann í gegnum aldirnar.

sad but true.....