mánudagur, mars 06, 2006

Cathode Ray Sunshine

Þetta var ekki róleg helgi.

Afmæli hjá henni Elísu á laugardag(ég var fastur inní eldhúsi að elda ofan í gestina)
og svo tók ég þátt í taekwondo styrktarmóti á sunnudag.
Náði öðru sæti í mínum flokki, sem ég tel að hafi verið heppni því að það var svo helvíti kalt inní salnum. Ég tók Elísu og Guðrúnu Lilju á skautasvellið í Egilshöll eftir mótið og það var eiginlega heitara þar inni :) Kvefið versnaði til muna eftir keppnina.

Afmælið tókst vel til, allur matur kláraðist(engir afgangar til að narta í daginn eftir).
Saknaði þó að hafa ekki pabba þarna. en hann var með í huga okkar allra.
Enn liggur hann sofandi uppá spítala og mun batinn taka langann tíma....

1 Comments:

Blogger Hættulega viðkunnanlegur said...

Sæll frændi,

Ánægjulegt að þú skulir vera kominn á hið rafrænatilverustig sem ég þykist tilheyra.

Bestu kveðjur,
Jón Smári.

19:52  

Skrifa ummæli

<< Home