þriðjudagur, janúar 29, 2008

This Is a Ghost Town.....

Ekki alveg þó :)
Er ekki hættur að röfla hérna þótt að það sé langt síðan ég röflaði seinast.
Betra seint en aldrei ekki satt?

Helena er að missa sig í skipulagningu á sumarfríinu og flutningunum.
Jamm við erum að fara að flytja í Garðabæinn í sumar, í danska hverfið (Nörrebrö)
Sjálfur tek ég þessu með ró, er reyndar að velda fyrir mér hvernig ég mun hafa tölvusetupið við sjónvarpið og fleira. Mun hafa þetta allt þráðlaust (orðinn pirraður á öllum þessum snúrum um stofuna). en allavega......


Loksins kominn almennilegur vetur, kalt og hvítt. me like :)
Og það er á eftir að verða mun kaldara á næstunni.
Veðrið seinustu hefur verið of mild að mínu mati, vantar almennilegar frosthörkur(20-30 mínus gráður) það væri gaman :D
brrrrrrrr

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ekki svona mikið frost... þá virkar bíllinn minn ekki!!

17:04  
Anonymous Nafnlaus said...

piff.. hvað áttu við með skipulagningu... ég er ekkert að missa mig... eða... kannski smá.. en ef þú værir áhugasamari væri ég kannski ekki svona stressuð.. þú veist að ég vil gera allt rétt... alveg sama hvað það er.

Talandi um að þú viljir hafa það kalt.. hvað með kalda putta og kaldar tásur sem leita til þín.. yfirleitt eru þau rekin í burtu með einhverju commenti um að það sé verið að þurrausa þig af öllum hita.. Ef þú vilt hafa það kalt, bjóddu þau þá velkomin.. hehe

12:23  
Blogger Hulda R. Jónsdóttir said...

Það er alveg merkilegt.. miðað við hvað ég er mikil kuldaskræfa þá líkar mér actually vel við skítakulda og snjó... :P

Verst samt þegar maður er að verða seinn í skólann og þarf að skafa af bílnum... Þetta væri allt saman fullkomið ef að ég ætti bílskúr.. ;)

23:28  

Skrifa ummæli

<< Home